Betra seint en aldrei.
Hérna koma ljóðin sem ég ætlaði að nota sem skemmtiatriði í útilegunni
en gat ekki klárað það vegna anna.
Núna koma nokkur ljóð
Um frændsystkin og maka
Vonum að þau verði góð
Annars dragiði mig til saka
Með kipp’af bjór og opal skot
Í ferð við skulum skunda
Vatn við höfum engin not
Nú fyllum við hann munda
Freysi drykkjurútur er
En Jagerbrúsinn lekur
Hrollur um hana Ernu fer
Er Freysi í vörina tekur
Útskirfast hún ætlar sér
sem lögfræðingur með stæli
Í réttarsal með mál frá mér
Hún öskrar “ég mótmæli”
Þórmundur í tæbó er
Hann er orðinn að einni klessu
af rúbý mat hann fitna fer
Ef gerir ekkert í þessu
Hleypur útum víðan völl
Sprikklandi á gormadínu
Dregur munda uppá fjöll
Ég er að tala um Kirstínu
Sigga meikar snuddurnar
Enda lærð í þessu fagi
Skoðið bara í buddurnar
Þar er einn af hverju tagi
Hver er það sem öskrar “stopp”
Er krakki út á götu þýtur
Hún þarf að venja þau á kopp
Þóra eftir börnum lýtur
Begg kennari verða vildi
Þótti þetta vafasöm gildi
Held hún vilji þetta bara
Því þeir svo oft í verkfall fara
Svo ætlaði ég að hafa eitthvað sprell á makana en það datt líka upp fyrir
Vígsla er á makana
Hver hún er ég ekki segi
þið verðið bara að takana
Annan kost þið hafið eigi
P.S. Allur höfundar stuldur verður kærður til lögreglu og mun Erna flytja mál mitt.